Handverkshátíðin við Hrafnagilsskóla
verður haldin í 20. sinn dagana
10.-13. ágúst 2012
Opið 12-19 föstudag til mánudags
Allar nánari upplýsingar gefur Ester Stefánsdóttir : handverk@esveit.is
eða í síma 824-2116
Flýtilyklar
Fréttir
Afgreiðslu umsókna lokið
Aldrei fleiri umsóknir
Gríðarlegur fjöldi umsókna barst að þessu sinni.
Niðurstaða valnefndar liggur fyrir þann 1. maí n.k..
Umsóknarfresturinn rennur út 1. apríl
Opnað hefur verið fyrir umsóknir
Fjölbreytni og metnaðarfullir básar
Nú er Handverkshátíð 2011 lokið og allir sammála um að sýningin hafi verið fjölbreytt og metnaðarfullir sýningarbásar. Aldrei fyrr hafa jafn margir heimsótt Handverkshátíðina.
Framkvæmdarstjóri og stjórn hátíðarinnar vill nota tækifærið og þakka bæði sýnendum og gestum kærlega fyrir komuna.
Handverksmaður ársins og sölubás ársins
Á kvöldvöku þar sem Hundur í óskilum skemmti gestum voru veitt verðlaun fyrir Handverksmann ársins og Sölubás ársins 2011.
Guðrún Bjarnadóttir var valin Handverksmaður ársins og Hólmfríður Arngrímsdóttir fékk verðlaun fyrir sölubás ársins. Dómnefnd ákvað að veita Bjarna Helgasyni sérstök Hvatningarverðlaun en Organelle er hönnunar- og silkiþrykks verkefni Bjarna sem hefur það að markmiði að sameina myndlist, hönnun, náttúru og handverk.
Fjöldi gesta aldrei meiri
Nú er öðrum degi hátíðarinnar lokið og fjöldi gesta hefur aldrei verið meiri. Á milli þess sem gestirnir gengu um sýningarsvæðið og versluðu spennandi varning af handverksfólki og hönnuðum gaf það sér tíma til að setjast niður og njóta eyfiskra veitinga í góða veðrinu. Á útisvæðinu í dag var boðið upp á rúning og hundasýningu þar sem hundar drógu börn á vögnum. Ekki má gleyma ungbændakeppninni þar sem Hákon Bjarki Harðarson frá Svertingsstöðum bar sigur úr bítum í karlaflokki og Anna Sonja Ágústsdóttir frá Kálfagerði í kvennaflokki.


