Handverkshátíđ 2011

Handverkshátíð 2012 Fjölbreytni og metnaðarfullir básar Handverksmaður ársins og sölubás ársins Fjöldi gesta aldrei meiri Handverkhátíðin sett

Fréttir

Handverkshátíđ 2012


Handverkshátíðin verður haldin í 20. sinn í ár.
Opnað verður fyrir umsóknir um þátttöku í næstu viku.


Fjölbreytni og metnađarfullir básar

Á myndinni er Hólmfríđur Arngrímsdóttir sem hlaut verđlaun fyrir sölubás ársins.

Nú er Handverkshátíð 2011 lokið og allir sammála um  að sýningin hafi verið fjölbreytt og metnaðarfullir sýningarbásar. Aldrei fyrr hafa jafn margir heimsótt Handverkshátíðina.

Framkvæmdarstjóri og stjórn hátíðarinnar vill nota tækifærið og þakka bæði sýnendum og gestum kærlega fyrir komuna.


Handverksmađur ársins og sölubás ársins

Á myndinni er Guđrún Bjarnadóttir sem valin var Handverksmađur ársins.

Á kvöldvöku þar sem Hundur í óskilum skemmti gestum voru veitt verðlaun fyrir Handverksmann ársins  og Sölubás ársins 2011.

Guðrún Bjarnadóttir var valin Handverksmaður ársins og Hólmfríður Arngrímsdóttir fékk verðlaun fyrir sölubás ársins. Dómnefnd ákvað að veita Bjarna Helgasyni sérstök Hvatningarverðlaun en Organelle er hönnunar- og silkiþrykks verkefni Bjarna sem hefur það að markmiði að sameina myndlist, hönnun, náttúru og handverk.

 


Fjöldi gesta aldrei meiri


Nú er öðrum degi hátíðarinnar lokið og fjöldi gesta hefur aldrei verið meiri. Á milli þess sem gestirnir gengu um sýningarsvæðið og versluðu spennandi varning af handverksfólki og hönnuðum gaf það sér tíma til að setjast niður og njóta eyfiskra veitinga í góða veðrinu. Á útisvæðinu í dag var boðið upp á rúning og hundasýningu þar sem hundar drógu börn á vögnum. Ekki má gleyma ungbændakeppninni þar  sem Hákon Bjarki Harðarson frá Svertingsstöðum bar sigur úr bítum í karlaflokki og Anna Sonja Ágústsdóttir frá Kálfagerði í kvennaflokki.

 


Handverkhátíđin sett


Ragnheiður Jóna Ingimarsdóttir menningarfulltrúi Eyþings setti Handverkshátíðina í dag. Gríðarlegur fjöldi gesta heimsótti hátíðina og ríkir mikil ánægja með fjölbreytta og vandaða sýningarbása.
Á útisvæðinu var boðið upp á skemmtilega viðburði. Tískusýningin var á sínum stað og Félag ungra bænda á Norðurlandi stóð fyrir kálfasýningu þar sem börn 12 ára og yngri kepptu sín á milli um fallegasta og best tamda kálfinn. Best tamdi kálfurinn var Thelma frá Rifkelsstöðum og það voru þær Tanja Sindradóttir og Hulda Þórisdóttir sem þjálfuðu hann. Fallegasti kálfurinn var Stjarna frá Rifkelsstöðum og það var Gunnhildur Þórisdóttir sem þjálfaði hann. Síðast en ekki síst var Hjarta frá Þríhyrningi valin Gullkálfurinn. Það var Benedikt Sölvi Ingólfsson sem þjálfaði hann. Fjölbreytt dagskrá á útisvæðinu verður alla helgina.

 


Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf