fimmtudagur 22.júlí 2010

Rennismiðir
að gestir staldri lengur við og koma aftur og aftur og aftur.
Vel á annað hundrað sýnendur undirbúa nú komu sína norður en ásamt þeim verður fjöldinn allur af hópum og félögum sem heimsækja okkur. Það sem ber auk þess að nefna er verksvæði handverksmanna sem nú verður á torginu, tískusýningar, krambúð, sirkushópur, blöðrulist og andlitsmálun fyrir börnin, gríðarlega spennandi söguþorpi verður komið upp og tímavél spunnin með handverksmönnum, landnámsmenn í miðaldatjöldum sýna verklag gamla tímans frá miðöldum til baðstofustemningarinnar og svo til nútímamannsins. Vélrúningur Birgis Arasonar úr Gullbrekku þar sem ullin er svo spunnin í réttinni og nú jafnvel jurtalituð í söguþorpinu verður alveg klárlega áhugavert að sjá. Félag landnámshænsna verður með sýningu og sína dásamlegu fegurðarsamkeppni. Kajaksmíði og vélasýning eru svo punkturinn yfir i-ið svo allir finni sér eitthvað skemmtilegt til að fylgjast með.
Vægast sagt fjölbreytt hátíð framundan hjá okkur. Allt framkvæmt með ungmennafélagsandanum þar sem hálf sveitin mun leggjast á eitt við framkvæmdina. Ungmennafélag, Hjálparsveit, Kvenfélög, Hestamannafélag, Lionsklúbbur - það er mögnuð menningin í Eyjafjarðarsveit....
Minni ykkur á námskeiðin sem haldin eru 10.-12.ágúst : Ölhænur, Flauelsskurður og Næfur. Bókanir standa nú yfir og það þéttist á námskeiðunum. Sjá nánar um námskeiðin hér á síðunni.

