Handverkshátíð 2011

Skrautblómanámskeið   Kennari: Linda Óladóttir listamaður 3 klst. Verð 4.000 kr. Þátttakendur læra að gera falleg blóm unnin úr pólíester. Blómin

Námskeið

Skrautblómanámskeið

 

Kennari: Linda Óladóttir listamaður

3 klst. Verð 4.000 kr.

Þátttakendur læra að gera falleg blóm unnin úr pólíester. Blómin er tilvalið að nota í nælur, hálsmen, hárteygjur, hárspangir ofl.. Þau er einnig  hægt að nota sem borðskraut í veislur eða til að lífga uppá heimilið, töskur og fatnað. Ódýrt, fljótlegt og skemmtilegt að vinna þau.
Þátttakendur hafa meðferðis skæri á þetta námskeið.
 

Staðsetning: Hrafnagilsskóli
Tími og dagsetning: Þriðjudagurinn 9. ágúst kl:15-18
Skráning:
kamilla@mmedia.is eða í síma: 862 4448

 

Nálarorkering

 

Kennari: Linda Óladóttir listamaður

3 klst. Verð 4.000 kr.

 

Kennd verður grunnaðferð við þetta gamla og fínlega handverk.  Orkering er m.a. notuð í blúndur, smáskraut, bókamerki, litlar dúllur en einnig stóra dúka fyrir þá þrautseigustu
 

Staðsetning: Hrafnagilsskóli
Tími og dagsetning: Miðvikudagurinn 10. ágúst kl:15-18
Skráning:
kamilla@mmedia.is eða í
síma: 862 4448

 

Námskeið í taulitun með Procion MX litum frá Jacquard

Kennari: Sveina Björk Jóhannesdóttir textílhönnuður
3 klst. Verð 5.500 kr
.

Kenndar verða ýmsar aðferðir við að lita efni með Procion MX taulitum frá Jacquard. Þessir litir eru vinsælustu taulitir í heiminum í dag og fást loksins á Íslandi. Þeir eru mjög einfaldir og auðveldir í notkun og bjóða uppá marga möguleika. Ekki þarf að standa við potta og lita heldur fixerast þeir við stofuhita.

 Á  námskeiðinu  verður kennt að lita í plastpokum, í bölum með mismunandi litum og efnum og einnig notaðar ýmsar aðferðir við að fá áferð í efnið og fá efnin mislit. Hægt er að lita garn með sama hætti. Kynning verður á taumálningu frá sama framleiðanda. Námskeið í tauþrykki er síðan frábært í framhaldi af litunarnámskeiðinu.  

Þátttakendur þurfa að hafa með sér á litunarnámskeið:
Ílát til að lita í t.d. vaskafat ca 25 cm á kant
Nokkrar plastdollur t.d. undan skyri (500 gr)
Plastskeiðar, nokkrar gúmmíteyjur og þvottaklemmur
Desilítramál

Frystipoka stærri gerðina
Góða gúmmíhanska eða nokkra einnota hanska og svuntu
Taubútar og efni til að lita, úr bómull, hör, viscose, rayon eða silki. Upplagt að nota gömul ljós munstruð bútasaumsefni með.
 

Stærðir og fjöldi taubúta:
Efnin geta verið einlit ljós eða munstruð, ljós efni, t.d. bútasaumsefni
15 bútar ca 25 cm á kant, úr ofangreindum hráefnum
3 bútar ca 45 cm á kant
3 bútar ca 25 cm á breidd og 50 cm á lengd
Einnig má koma með 1 ljósan bómullarbol og eitthvað garn t.d. útsaumsgarn. ATH. Garnið verður að vera úr bómull, hör, silki eða viscose.

Hægt er að kaupa efnispakka af kennara og kostar hann 2.500 kr. en þarf að panta fyrirfram.

Staðsetning: Verkmenntaskólinn á Akureyri, Listnámsbraut, gengið inn að norðan
Tími og staðsetning: Þriðjudagskvöldið 9. ágúst kl: 18-21 
Skráning:
sveina@sveina.is

 

Námskeið í tauþrykki með textíllitum frá Jacquard og Shiva paintstik litum

 

Kennari: Sveina Björk Jóhannesdóttir textílhönnuður

5 klst. Verð 8.500 kr.

 

Kenndar verða ýmsar aðferðir við að lita og þrykkja efni með textíllitum frá Jacquard og Shiva paintstik litum. Farið verður yfir stimplaþrykk, þrykk í gegnum ramma og hvernig er hægt að mála efni og spreyja. Einnig prófum við að æta burt liti. Textíllitirnir frá Jacquard eru fyrir öll efni þar með talin gerviefni og leður. Shiva paintstik er einnig hægt að nota á hvaða efni sem er. Upplagt er að koma með bæði gerviefni og svo náttúruleg til að sjá muninn.

Ef þið eruð nýkomin af litunar námskeiði má gjarnan taka þau efni með og nota þau sem grunn fyrir áframhaldandi áferð í efnið.

 

Þátttakendur þurfa að hafa með sér á tauþrykksnámskeið:

Blöð, skriffæri og skæri

Lítinn dúkahníf og mottu til að skera á
Ef þið eigið þrykkramma og sköfu endilega komið með það, ef ekki þá væri gott að þið væruð búin að fjárfesta í blindramma í ca stærð 30*40 cm. Þeir kosta um 1200 kr. Setja þá saman eins hornrétt og hægt er og lakkið að minnsta kosti tvær umferðir yfir þá. Net í rammana fáið þið á staðnum.  
Svampa og pensla til að mála og stensla með
Einnota hanska og svuntu.

 

Stærðir og fjöldi taubúta:

Komið með ca 1 meter af ljósu bómullarefni og ca 1 meter af dökku bómullarefni. Einhver lituð efni og svo einhver gervi efni bæði ljós og dökk. Ef þið eigið leður má gjarnan koma með bút af því. Einnig má koma með bol eða einhverja aðra flík til að þrykkja á. Ágætt er að hafa í huga samt að þetta er grunn námskeið í þrykki en ekki er endilega verið að þrykkja fullmótuð stykki. Þið haldið svo áfram sjálf á eftir.

 

Staðsetning: Verkmenntaskólinn á Akureyri, Listnámsbraut, gengið inn að norðan
Tími og staðsetning: Miðvikudagskvöldið 10. ágúst kl: 18-23
Skráning:
sveina@sveina.is
   

 

Námskeið í prentun á efni

 

Kennari: Sveina Björk Jóhannesdóttir textílhönnuður

3 klst. Verð 5.500 kr.

Kynning á áprentun mynda/mynstra á efni í hefðbundnum bleksprautuprentara.  Farið verður í einfalda tölvumyndvinnslu með myndir frá þátttakendum og þær prentaðar á efni. Farið verður yfir hvaða efni henta best og hvernig eru efnin undirbúin fyrir prentun. Prentað verður á nokkur mismunandi efni til að sjá mun á áferð og myndgæðum.
Farið verður í grunnatriði í myndvinnslu fyrir myndirnar áður en þær eru prentaðar á efnin.

Staðsetning: Verkmenntaskólinn á Akureyri, Listnámsbraut, gengið inn að norðan
Tími og staðsetning: Mánudagsmorguninn 8. ágúst kl: 8:30 - 11:30
Skráning:
sveina@sveina.is


Námskeið í frjálsum útsaum í saumavél

Kennari: Sveina Björk Jóhannesdóttir textílhönnuður

4 klst. Verð 5.500 kr.

Viltu ná meiru út úr saumavélinni þinni? Lærðu einfaldann útsaum á “venjulega” saumavél. Farið verður yfir grunnaðferðir í frjálsum útsaum og gerðar tækniprufur sem nýtast til áframhaldandi vinnu. Þetta námskeið er fyrir þá sem eru vanir að sauma og vantar meiri tækni og einnig upplagt fyrir handavinnukennara sem myndu þá miðla áfram til sinna nemenda.

Þátttakendur hafi með sér efni, tvinna og saumaáhöld. Saumavélar verða til staðar en upplagt að koma með sýna eigin vél og læra útsauminn á hana J

Staðsetning: Verkmenntaskólinn á Akureyri, Listnámsbraut, gengi inn að norðan
Tími og staðsetning: Fimmtudagskvöldið 11. ágúst kl: 18-22 
Skráning:
sveina@sveina.is

 

 


Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf