Nú gefst handverksfólki og hönnuðum kostur á að sækja um aðstöðu á sýningarsvæði Handverkshátíðar
2012. Hátíðin sem nú verður haldin í 20. sinn verður sérstaklega vegleg af því tilefni.
Umsóknarfresturinn rennur út 1. apríl. Vinsamlega fyllið út rafrænt umsóknareyðublað hátíðarinnar hér að
neðan. Valnefnd leggur mat á umsóknirnar og velur sýnendur. Niðurstaða valnefndar liggur fyrir 1. maí og verður öllum umsóknum
svarað.
Opnunartími hátíðarinnar:
Föstudagurinn 10. ágúst kl: 12-19
Laugardagurinn 11. ágúst kl: 12-19
Sunnudagurinn 12. ágúst kl: 12-19
Mánudagurinn 13. ágúst kl: 12-17

